Aggi!
Oft finnst mér ekki hafa neinn tíma. Svo fatta ég að ég er búinn að eyða kvöldinu í að grúska nöfn sem ég fann krotuð á vegg í kjallaranum í blokkinni minni. Komst að því að hér bjuggu sex bræður ásamt foreldrum sínum í 40fm íbúð og einn þeirra skrifaði nöfnin þeirra í aldursröð á vegginn sirka 1948
Aggi! reposted
The same company that doesn't pay artists seems to always find the money to pay this jackass. If you're still using Spotify... why? Pretty much every alternative is better in every way.
Pælið í því að í 90’s var fólk að hrista botninn við íslenskt útburðarvæl.
Hey! @asdiso.bsky.social Til hamingju!
Ég vil biðja ykkur náðarsamlegast að andskotast til að óska hinni heittelskuðu @asdiso.bsky.social til hamingju með afmælisdaginn. Bjartur sólargeisli í líf allra í kringum sig. Algert eðaleintak af manneskju. ❤️
Aggi! reposted
Þá er gosbrunnurinn okkar í Malmö fallegri. Hann ku vera minnsti gosbrunnur i heimi og er fyrir utan vinnustaðinn minn. Hann er svo agnarsmár að það leið hálfur mánuður áður en við tókum eftir að borgin er búin að slökkva á honum vegna vatnsskorts í borginni.
Ég er alls ekki að standa mig sem sérlegur fréttaritari frussbrunnsins í Hafnarstræti, en hann var ræstur án nokkurrar viðhafnar í síðustu viku og frussar nú sem aldrei fyrr. Frárennslið er að sjálfsögðu ekkert betra en áður svo vatnið lekur langar leiðir að niðurfalli.
Aggi! reposted
Aggi! reposted